Saltkaup ehf er á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2020.
2,7% fyrirtækja á Íslandi eru Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri samkvæmt skilyrðum Keldunnar og Viðskiptablaðsins.
Til þess að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa fyrirtæki að hafa uppfyllt ýmis skilyrði.
Tekjur þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna á rekstrarárunum 2018 og 2019, eignir yfir 80 milljónum og afkoman þarf að hafa verið jákvæð. Þá þarf eiginfjárhlutfallið að hafa verið yfir 20%. Auk þessa er tekið tillit til rekstarársins 2017 og annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.