Saltkaup ehf er á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2019. Þetta er sjöunda árið í röð sem Saltkaup lendir á þessum lista.
Creditinfo tekur saman lista yfir þau fyrirtæki sem uppfylla ströng skilyrði um styrk og stöðugleika í rekstri sem lögð eru til grundvallar við greiningu á framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2019
Strangt gæðamat og faglegar kröfur
Til þess að eiga kost á viðurkenningunni þurfa fyrirtækin að uppfylla strangt gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningu Creditinfo.
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1, 2 eða 3
- Ársniðurstaða var jákvæð rekstrarárin 2016–2018
- Eiginfjárhlutfall var a.m.k. 20% rekstrarárin 2016–2018
- Framkvæmdastjóri er skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
- Ársreikningi var skilað til RSK fyrir rekstrarárin 2016–2018
- Ársreikningi fyrir rekstrarárið 2018 var skilað á réttum tíma skv. lögum
- Rekstrarhagnaður (EBIT) var jákvæður rekstrarárin 2016–2018
- Rekstrartekjur voru a.m.k. 50 milljónir króna rekstrarárin 2017 og 2018
- Eignir voru a.m.k. 100 milljónir krónar rekstrarárin 2017 og 2018 og a.m.k. 90 milljónir króna rekstrarárið 2016