Saltkaup ehf er á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2018. Þetta er sjötta árið í röð sem Saltkaup lendir á þessum lista.
Creditinfo tekur saman lista yfir þau fyrirtæki sem uppfylla ströng skilyrði um styrk og stöðugleika í rekstri sem lögð eru til grundvallar við greiningu á framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2018
Saltkaup ehf er á meðal 2,2 % íslenskra fyrirtækja sem standast þær kröfur.
Strangt gæðamat og faglegar kröfur
Til þess að eiga kost á viðurkenningunni þurfa fyrirtækin að uppfylla strangt gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningu Creditinfo.
Skilyrðin eru
– Hafa skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár.
– Líkur á alvarlegum vanskilum þess eru minni en 0,5%
– Rekstrarhagnaður (EBIT) hefur verið jákvæður þrjú ár í röð.
– Ársniðurstaða hefur verið jákvæð þrjú ár í röð.
– Eiginfjárhlutfall 20% eða meira þrjú rekstrarár í röð.
– Eignir hafa numið 80 milljónum króna eða meira þrjú ár í röð.
– Framkvæmdastjóri er skráður í fyrritækjaskrá RSK
– Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
Feðagarnir Hilmar Þór Hilmarsson framkvæmdastjóri og Hilmar þór Hilmarsson jr sölu- og markaðstjóri tóku á móti viðurkenningunni.