Alhliða umbúðalausnir fyrir sjávarútveg.

Saltkaup h.f. var stofnað árið 1990. Framkvæmdastjóri er Hilmar Þór Hilmarsson og fastráðnir starfsmenn eru 10.

Aðalstarfsstöð Saltkaupa h.f. er í Hafnarfirði, en að auki eru haldnar saltbirgðir á ýmsum stöðum á ströndinni s.s. í Grindavík, Dalvík, Húsavík, Höfn og Vestmannaeyjum.


Fyrirtækið er leiðandi í innflutningi og sölu á fiski- og götusalti, alhliða umbúðum fyrir sjávarútveg, ásamt tunnum og íbætiefnum fyrir rækju, síld o.fl.


Salkaup h.f. lætur m.a. framleiða sérmerktar umbúðir fyrir framleiðendur og er frekar aukning í því, þar sem framleiðendur vilja hafa sínar vörur sýnilegri en áður hefur verið. Einnig eru ómerktar umbúðir stór hluti innflutnings og sölu fyrirtækisins.


Breidd umbúðanna er allt frá örkum í öskjur, til 1000 kg. umbúða í ýmsum gerðum og litum. Útlit umbúða er snar þáttur í ferlinu og er kappkostað að hafa þær sem neytendavænstar.


Saltkaup h.f. er stærsti innflutnings- og söluaðili fiskisalts á Íslandi. Saltið er flutt inn í svokölluðum bulkskipum og er að mestu leyti losað laust í skemmu okkar í Hafnarfirði. Auk þess fara skip á ströndina og er þá saltið sekkjað í 1000 kg. poka, allt eftir þörfum framleiðenda. Stærsti hluti saltinnflutnings kemur frá Túnis, Bahamaeyjum og Spáni.


Saltkaup h.f. selur megnið af vörum sínum til íslenskra framleiðslufyrirtækja, en einnig er útflutningur til Grænlands, Kanada og fleiri landa. Fyrirtækið þjónustar einnig erlend ferskfisk- og frystiskip sem koma til Íslands.

Helstu framleiðslu- og viðskiptalönd Saltkaupa h.f.  auk Íslands eru Noregur, Túnis, Bahamaeyjar, Spánn og Sádí-ArabÍa.

Eins og áður var getið býður Saltkaup h.f. alhliða lausnir í umbúðum, salti og íbætiefnum fyrir sjávarútveg.